Á grænni grein

graenfani

Komandi viðburðir


Engir viðburðir eru skráðir á næstunni.
Skoða dagatalið
Febrúar 2012 Mars 2012
Su Þr Mi Fi La
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29
Árshátíð 1.-7. bekkjar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 26 janúar 2012 11:38

Árshátíð 1.-7. bekkjar verður haldin í sal Klébergsskóla fimmtudaginn 2. febrúar 2012, kl. 18. Gert er ráð fyrir að hún standi til kl. 19:30.     
Dagskráin samanstendur af skemmtiatriðum frá bekkjunum og sjá nemendur einnig um kynningu.

Boðið verður uppá kaffi eftir skemmtiatriðin, gegn gjaldi. Gjaldið er 500 kr. á mann en hámark 1.500 fyrir fjölskyldu. Hægt verður að ganga frá kaffigjaldinu við innganginn.

Það eru foreldrar nemenda í 5.-7. bekk sem leggja til kökur með kaffinu en skólinn sér um drykki (kaffi og djús) og meðlæti til viðbótar.

Innkoman af þessu kaffisamsæti er lögð í sjóð 6. bekkjar og notuð til að greiða niður ferð þeirra í Skólabúðirnar að Reykjum næsta haust.

Þannig njóta allir bekkir á endanum góðs af þessu fyrirkomulagi sem á sér langa sögu hér við Klébergsskóla.

Sjáumst hress á fimmtudaginn!

 
Hrós vikunnar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
laugardagur, 28 janúar 2012 20:19

Hrós vikunnar (22.-28. janúar) er að þessu sinni tileinkað konunum í eldhúsinu, þeim Kolbrúnu og Guðbjörgu en þær eru duglegar að bera fram góðan mat og passa þannig upp á enginn fari svangur úr morgunmat eða hádegismat.

 
Nýjar myndir Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
laugardagur, 28 janúar 2012 16:06

Nýjar myndir eru komnar í myndasafnið. Hér má sjá þær: http://www.klebergsskoli.is/index.php?option=com_phocagallery&view=category&id=53:vorie-2012&Itemid=265

Annars vegar eru þetta myndir frá skemmtun 5. bekkinga á Samveru á fimmtudagsmorgni nýlega og hins vegar myndir sem teknar voru þegar jörð var hér alhvít og börnin léku sér í snjónum. Þetta var þegar hér var vetur fyrir örfáum dögum.

img_3408 img_3419
img_3413
 
Hrós vikunnar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 23 janúar 2012 16:45

Hrós vikunnar fá þrír glöggir drengir í 10. bekk, þeir Alexander, Daníel og Óli Geir, fyrir góða frammistöðu í Spurningakeppni grunnskólanna. Þar keppa þeir  fyrir hönd Klébergsskóla og eru komnir í 8. liða úrslit, eins og fram kemur hér á vefnum.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 91