| Einkunnarorð skólans |
|
|
|
|
VIRÐING - SAMVINNA – METNAÐUR eru einkunnarorð skólans. Í starfi Klébergsskóla á að ríkja virðing fyrir hverjum og einum. Starfið á að einkennast af samvinnu nemenda, foreldra og starfsfólks skólans og metnaði hvers einstaklings til að gera sitt besta. Þannig eiga allir að geta notið sín, menntast og verið hamingjusamir einstaklingar. Klébergsskóli er vinnustaður nemenda, kennara og annars starfsfólks skólans. Við berum sameiginlega ábyrgð á því að skólinn sé snyrtilegur, vistlegur og hlýlegur vinnustaður er stuðli að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Ennfremur að samskipti séu byggð á gagnkvæmu trausti, virðingu og umburðarlyndi.
|







