| Tónlistarskólinn á Klébergi |
|
|
|
|
Tónlistarkennsla Tónlistarskólans á Klébergi fer fram í Klébergsskóla. Kennt er á blásturshljóðfæri, hljómborð, gítar og píanó auk kennslu í söng og raddbeitingu. Lagt er upp með að skólahljómsveit starfi í skólanum en nemendur eiga jafnframt kost á að æfa með Skólahljómsveit Mosfellsbæjar. Skólinn hefur útvegað nemendum blásturshljóðfæri en aðrir nemendur skólans nýta eigin hljóðfæri. Skólagjöld eru greidd tvisvar á ári fyrir haust- og vorönn. Ef fleiri en einn nemandi úr fjölskyldu vill stunda nám í tónlistarskólanum er veittur 20% afsláttur eftir þann fyrsta. Hljóðfæraleiga er 2000kr (vor 2012) ef hljóðfæri er fengið að láni hjá skólanum fyrir tónlistarnámið. Hægt er að greiða fyrir námið með frístundastyrk - frístundakortinu - frá Reykjavíkurborg. Sótt er um í gegnum rafraen.reykjavik.is, netpóst skólans ( Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. ), með eyðublöðum sem hægt er að fá á skrifstofu skólans eða prenta út umsóknareyðublað (nemendur koma einnig með svoleiðis eyðublöð heim að hausti ef þau vilja stunda tónlistarnám). Kennarar tónlistarskólans sjá einnig um tónmennt (blokkflauta) í 1. bekk. Kennarar við skólann eru Sveinn Þ. Birgisson og Ásrún Inga Kondrup. Björgvin Þór Þórhallsson skólastjóri Tónlistarskólans á Klébergi er jafnframt skólastjóri Klébergsskóla.
Tónlistarskólinn á Klébergi heldur að jafnaði tvo tónfundi á ári. Þann fyrri í desember eða janúar en þann síðari í maí. Auk þess koma nemendur fram á samverum á vegum Klébergsskóla og við ýmis önnur tækifæri sem gefast. Um tónlistarnám
|





















