Komandi viðburðir


Skólafærninámskeið fyrir foreldra í 1. bekk
september 08, 2010 (18:00 - 19:00)
Skoða dagatalið
September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30
Skólareglur Klébergsskóla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar reglur

Í Klébergsskóla er lögð áhersla á að framkoma nemenda, umgengni, ástundun og stundvísi sé góð. Reglur skólans taka mið af þessu. Umsjónarkennarar hvers stigs setja síðan frekari reglur um umgengni og almenn samskipti í samráði við nemendur sína og semja bekkjarreglur. Í þeim er einnig tekið mið af þeim fjórum reglum sem farið er eftir í Olweusaráætluninni.

Nemendum er skylt að fara eftir skólareglum og hlíta fyrirmælum starfsfólks skólans, meðan þeir dvelja í skólanum, í öllu starfi á vegum skólans og í skólabifreiðum.
Komi upp vandamál vegna hegðunar og/eða ástundunar nemenda eru þau leyst í samvinnu við nemendur og foreldra/forráðamenn.

Framkoma
Nemendum ber að koma fram við skólasystkini, starfsfólk skólans og gesti, af fyllstu kurteisi og tillitssemi, jafnt í orði sem í verki. Á sama hátt ber starfsfólki að umgangast nemendur og aðstandendur þeirra af virðingu, vinsemd og tillitssemi.

Umgengni
Öllum er ætlað að ganga kurteislega og þrifalega um skólann og muni hans. Vísvitandi skemmdir skulu bættar af viðkomandi nemanda og forráðamönnum hans. Háreysti og hlaup á göngum eru bönnuð, einnig er notkun tyggjós og farsíma bönnuð í skóla og á skólalóð á skólatíma og snjókast á skólalóð í frímínútum nema á fyrirfram ákveðnum svæðum. Hjólatæki eru ekki leyfð á skólalóð á skólatíma nema á sérstökum hjólatækjadögum. Ekki skal fara af skólalóð á skólatíma nema með leyfi umsjónarkennara eða skólastjórnanda.

Ástundun og stundvísi
Öllum ber að stunda nám og starf af kostgæfni. Mæta skal stundvíslega í allar kennslustundir með þau gögn sem nota á hverju sinni.

Neysla ávana- og fíkniefna
Skólinn og skólalóðin er reyklaus vinnustaður og öll meðferð tóbaks og annarra vímuefna er bönnuð. Það sama á við hvar sem nemendur eru á vegum skólans.