| Flógyn |
|
|
|
| fimmtudagur, 20 janúar 2011 13:30 |
|
Félagsmiðstöðin Flógyn Kjalarnesi Sími: 566-8176 netfang: Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. facebook: www.facebook.com/flogyn Flógyn er félagsmiðstöð sem rekin er af Klébergsskóla í samvinnu við ÍTR og er staðsett í frístundaheimilinu Kátakoti á Kjalarnesi. Félagsmiðstöðin er fyrir nemendur í 8.-10.bekk Klébergsskóla.
Leiðarljós félagsmiðstöðvarinnar á Kjalarnesi. Starfsfólk hefur það að leiðarljósi að tryggja öllum börnum og unglingum vellíðan og öryggi í starfi félagsmiðstöðvarinnar. Öllum líður vel þar sem gagnkvæm virðing ríkir og hver og einn er boðinn velkominn á eigin forsendum.
Þekkir þú Landslögin? Samkvæmt lögum mega ungmenni yngri en 18 ára ekki reykja tóbak og ungmenni yngri en 20 ára ekki drekka áfengi. Önnur fíkniefni eru ólögleg á Íslandi. Starfsfólk félagsmiðstöðva virðir landslög og gilda þau að sjálfsögðu í öllu starfi félagsmiðstöðvanna. Ungmennum er ekki heimilt að hafa slík efni undir höndum í félagsmiðstöðvarstarfi og starfsfólk áskilur sér rétt til þess að leita að áfengi og öðrum vímuefnum í starfi og ferðum á vegum félagsmiðstöðvarinnar ef ástæða þykir til.
Annars gildir..... Almenn kurteisi í samskiptum og umgengi í félagsmiðstöðinni eins og alls staðar annars staðar!
|





















