| Klébergsskóli |
|
|
|
| fimmtudagur, 27 janúar 2011 11:39 |
|
Um skólannKlébergsskóli er einn elsti grunnskólinn í Reykjavík og var elsta bygging skólans tekin í notkun 19. október 1929. Það húsnæði er enn í notkun. Skólinn er staðsettur rétt ofan við Kléberg á Kjalarnesi[1]. Nemendur sem sækja skólann koma úr Kjalarnesi og Kjós og þjónar Klébergsskóli því tveimur sveitarfélögum, Reykjavíkurborg og Kjósarhreppi. Skólabílar aka þeim nemendum í skólann sem búa utan Grundarhverfis, hvort sem það er á Kjalarnesi eða í Kjós. Með samningi ÍTR og Menntasviðs Reykjavíkur færðist starfsemi ÍTR á Kjalarnesi undir Klébergsskóla. Þar er um að ræða Íþróttamiðstöðina á Klébergi og Klébergslaug, Frístundaheimilið Kátakot og Félagsmiðstöðina Flógyn. Í Klébergsskóla er sjálfstætt starfandi tónlistarskóli, Tónlistarskólinn á Klébergi og sækja tónlistarnemendur námið ýmist á skólatíma eða eftir skóla.
Símar: Skrifstofa/ritari: 566-6083 Fax: 566-8084 Frístundaheimilið Kátakot: 566-8176 Umsjónarmaður skólahúss: 664-8272 Íþróttahús: 566-6879 Tölvusamskipti: Netfang ritara: Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. Heimasíða skólans: www.klebergsskoli.is Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 08:00 – 15:00 og á föstudögum frá 08:00 - 13:00.
[1] Kléberg kemur fyrir í Kjalnesingasögu þar sem aðalpersónan Búi Andríðarson verst fjendum sínum með slöngvuvaði. Falla þeir all nokkrir en Búi kemst undan. |





















