Stjórn skólans og skipulag Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 27 janúar 2011 15:01

Skipurit Klébergsskóla:

 

Hér er aðeins vikið stjórnskipulagi Reykjavíkurborgar og skólans, þ.e. hverjir koma stjórnun, stefnumótun og ákvarðanatöku. Menntamálaráðuneytið hefur sjálfsögðu æðsta vald í þessum málaflokki. verður í fáum orðum gerð grein fyrir stjórnskipulagi grunnskólans. Hafa ber í huga um gróft yfirlit er ræða og fleiri aðilar og stofnanir koma en hér greinir.

 

Menntaráð er skipuð sjöfulltrúum. Hlutverk ráðsins er að marka stefnu Reykjavíkurborgar í skólamálum, fylgjast með að aðbúnaður sé í samræmi við ákvæði laga og að skólanum sé tryggður aðgangur að viðeigandi sérfræðiþjónustu.

 

Menntasvið Reykjavíkurborgar

Meginhlutverk Menntasviðs Reykjavíkurborgar er að hafa með höndum yfirstjórn skólamála í Reykjavík og veita grunnskólum borgarinnar faglega og fjárhagslega ráðgjöf og þjónustu.

 

Stjórnendur skólans skipta með sér verkum þannig að skólastjóri, Björgvin Þór Þórhallsson, ber ábyrgð á starfi skólans, fjárhagslegum rekstri og veitir honum faglega forystu. Aðstoðarskólastjóri, Snorri Hauksson, er staðgengill skólastjóra. Hann hefur umsjón með námsbókum og kennslugögnum og skipuleggur starf skólaliða í samráði við umsjónarmann. Hann hefur umsjón með skipulagsmálum og sér um mönnun í forföllum. Hann sinnir agamálum og framfylgir þeim ákvörðunum sem þar eru teknar.

 

Umsjónarkennari annast daglega umsjón með nemendum sínum.  Fylgist með námi og þroska allra sinna nemenda.  Hann er helsti tengiliður foreldra við skólann og kemur upplýsingum sem við eiga um nemandann til annarra kennara og starfsfólks. Hann annast skráningu einkunna og annarra upplýsinga er varða nemendurna. Hann hlutast til um að nemandinn njóti allrar þeirrar þjónustu sem honum ber og unnt er að veita.

 

Samkvæmt lögum um grunnskóla skal starfa skólaráð við hvern skóla. Skólaráð fjallar um og gefur umsögn til skólans og fræðslunefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða skólahaldið, aðbúnað o.fl. þætti.

 

Kennarafundir/starfsmannafundir/stigsfundir. Að jafnaði eru starfsmannafundir mánaðarlega. Á þesum fundum eru teknar ákvarðanir um ýmis málefni og á starfsmannafundum eru einstök mál tekin upp til samræmingar milli starfsmanna ásamt því að tilkynningar og ýmsar upplýsingar eru kynntar. Stigsfundir eru haldnir í viku hverri.