Eftirlitskerfi vegna eineltis Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 27 janúar 2011 15:43

 

Eftirlitskerfi vegna eineltis:
Skólastofan

  • Hafa þarf vakandi auga með samskiptum nemenda og grípa þarf strax inn í ef árekstrar verða.
  • Fylgjast skal sérstaklega vel með nemendum sem eiga erfitt með samskipti hvort sem það kemur fram sem hegðunarörðugleikar eða félagsleg einangrun.
  • Ef kennari/starfsmaður þarf að skilja eftir bekk skal hann sjá til þess að einhver fullorðinn hafi eftirlit á meðan hann er fjarverandi.
  • Mikilvægt er að sérgreinakennarar/stuðningsfulltrúar skrái og komi til umsjónarkennara upplýsingum ef eitthvað kemur upp á í tíma hjá þeim.

Gæsla í frímínútum
Starfslið

  • Tveir skólaliðar eru á útivakt og tveir inni.
  • Í forföllum þarf að tryggja afleysingar við gæslu.
  • Á álagstímum er fjölgað í gæsluliðinu.

Helstu verkefni

  • Hvetja börnin til leikja og stuðla að þátttöku sem flestra.
  • Gæta þess eins og kostur er að leikir og önnur samskipti fari fram með farsælum og friðsælum hætti.
  • Aðstoða börn sem hafa meitt sig eða orðið fyrir öðrum skakkaföllum.
  • Bregðast við árekstrum sem upp koma milli nemenda, skrá upplýsingar um þá og koma áleiðis til viðkomandi umsjónarkennara.
  • Fylgjast með því hvort einhverjir nemendur virðast einangraðir félagslega (oftast einir, sjaldan með í leikjum) og láta þá viðkomandi umsjónarkennara vita af því.
  • Fylgjast með að nemendur séu innan lóðarmarka.

Svæði sem sérstaklega þarf að fylgjast með:

  • Við íþróttahús þegar nemendur eru að bíða eftir að fara þar í tíma.
  • Ýmis skot að húsabaki.
  • Matsalur.
  • Búningsklefar.

Stýring hópa á leiksvæði

  • Skipuleggja þarf afnot af fótboltavellinum og leiktækjum (rólum, rennibraut og vegasalti) svo allir komist þar að sem áhuga hafa.

Skráning árekstra og óæskilegrar hegðunar

  • Gæslufólk í frímínútum skráir þau atvik sem verða á þar til gerð eyðublöð og kemur þeim til umsjónarkennara.
  • Umsjónarkennari metur hvort skrá eigi atvikið í Mentor og sér þá sjálfur um skráninguna. Hann metur einnig hvort hafa eigi samband við foreldra.

Eftirlit á göngum

  • Hver kennari fylgir sínum bekk fram í anddyri við upphaf frímínútna.
  • Starfsfólk sem verður vitni að árekstrum eða öðrum óæskilegum atvikum á göngunum skráir þau og kemur til umsjónarkennara.

Ef einelti kemur upp

  • Ef upp koma eineltismál er unnið í samræmi við ,,vinnuferli við lausn eineltismála.”