| Mötuneyti |
|
|
|
| mánudagur, 07 febrúar 2011 14:14 |
|
Lögð er sérstök áhersla á hollt og gott mataræði nemenda. Hafragrautur er í boði strax á morgnana þar til skóli hefst kl. 8:15 á morgnana, nemendum að kostnaðarlausu. Nemendum í skólanum er boðið að vera í áskrif í morgunhressingu og fá þá ávexti og mjólk á morgnana. Þrátt fyrir að boðið sé upp á morgunhressingu í skólanum er mikilvægt að nemendur borði morgunverð áður en þeir fara í skólann. Maturinn er greiddur fyrirfram fyrir hvern mánuð með gíróseðli sem sendur er heim eða í heimabanka. Breytingar á áskrift þurfa að berast fyrir 20. hvers mánaðar og taka þær þá gildi um þau mánaðamót sem á eftir koma. Ekki er endurgreitt þó nemandi verði veikur eða ekki verið alla daga mánaðarins í skólanum af einhverjum orsökum. Verð á hádegismat í mötuneyti er ákveðið af nefnd hjá Skóla- og Frístundasviði og hægt er að nálgast þá verðskrá hér Sjá „Tengd skjöl“, hægra megin á síðunni: Áskrift í skólamötuneyti Morgunhressingin kostar 100 kr. á dag og í henni er þetta innifalið: niðurskornir ávextir og mjólk.
Skýringar með matseðli Klébergsskóla. Allar ábendingar og hugmyndir eru vel þegnar! Hér má finna gjaldskrá fyrir skólamötuneyti. Sjá „Tengd skjöl“, hægra megin á síðunni. |





















