|
Vinnuferli um óreglubundinn skólaakstur |
|
|
|
|
mánudagur, 07 febrúar 2011 14:38 |
|
Félagsstarf - samkomur í skólanum
-
Nemendur komi sér sjálfir á samkomur í skólanum.
-
Kjósverjar sameinast um akstur (samkvæmt áætlun).
-
Þeir sem koma á samkomuna eiga að vera á henni allri og fara beint heim að henni lokinni
-
Aðeins að ósk foreldra er hægt að víkja frá þessari reglu
-
Samkomugestir eiga að ganga vel og snyrtilega um og taka til eftir sig að skemmtun lokinni. Heimakstur er ekki fyrr en að lokinni tiltekt.
-
Ef nemendur fara af samkomu áður en henni lýkur skal láta foreldra/forráðamenn vita hvort sem þau eru í skólaakstri eða ekki.
-
Heimakstur
-
Af skemmtunum er þeim nemendum ekið heim sem að jafnaði koma með skólabíl í skólann. (Samkomulag er við bílstjóra úr Kjós að þeir aki nemendum af bæjum norðan Grundarhverfis).
-
Ef veður er viðsjált er lögð áhersla á að tryggja nemendum heimferð með því að aka ferð um Grundarhverfi og/eða gæta þess að nemendur fái far heim með aðstandendum sínum.
-
Undantekningar frá þessu vinnuferli verða tilkynntar foreldrum sérstaklega.
Félagsstarf - ferðir út fyrir skólahverfið
-
Brottför frá skólanum.
-
Nemendur koma sér sjálfir í skólann.
-
Kjósverjar sameinast um akstur (samkvæmt áætlun)
-
Reglur skólans gilda í öllum ferðum sem tengjast skólanum.
-
Þeir sem fara í ferðina eiga að vera í henni allri og koma með hópnum heim.
-
Aðeins að ósk foreldra er hægt að víkja frá þessari reglu.
-
Hafi einhver ekki skilað sér í rútuna á tilteknum tíma til brottfarar
-
er fyrst beðið í 10 mínútur
-
síðan er tilkynnt til foreldra að viðkomandi nemandi hafi ekki skilað sér
-
Í samráði við foreldra (skólastjóra ef ekki næst í þá) er ákveðið framhald málsins.
-
Foreldrar komi á brottfararstað.
-
Starfsmaður bíði á brottfararstað.
-
Málið tilkynnt lögreglu.
-
Heimakstur er að skólanum
-
Óski foreldrar eftir því að nemanda sé hleypt út við heimreið viðkomandi á leiðinni að skóla er það gert á ábyrgð foreldra.
-
Nemandi lætur foreldra sína vita um áætlaðan komutíma.
-
Foreldrar eiga að vera komnir á staðinn á undan rútunni svo nemandi sé ekki í hættu við þjóðveginn. Ekki er beðið eftir að nemandi sé sóttur nema í viðsjálu veðri.
-
Nemandi á ekki að fara yfir þjóðveginn til að bíða eftir því að verða sóttur.
-
Umsjónarmenn ferðar sjá um að nemendur geti beðið inni í skólanum eftir því að verða sóttir.
-
Nemendur úr Kjós eru sóttir í skólann. (Samkomulag er við bílstjóra úr Kjós um að þeir aki einnig nemendum á bæjum norðan Grundarhverfis).
-
Umsjónarmaður ferðar getur aukið heimakstur ef um lítinn hóp er að ræða í lítilli rútu.
-
Undantekningar frá þessum vinnuferli verða tilkynntar foreldrum sérstaklega.
|