| Gjaldskrá |
|
|
|
| fimmtudagur, 17 febrúar 2011 10:19 | ||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Hækkun á gjaldskrá frá 1. febrúar 2012
Ef tvö systkini eða fleiri eru í vistun á frístundaheimilum borgarinnar er veittur 75% afsláttur vegna annars barns en 100% vegna þriðja og fjórða barns af frístundagjaldi. Skilyrði er að systkinin hafi sama lögheimili og fjölskyldunúmer í þjóðskrá. Foreldrar greiða fullt fæðisgjald fyrir öll börnin.
Gjaldskrá fyrir vistun og síðdegishressingu. Gildir út janúar 2012. Frá 1. febrúar 2011 verður veittur 75% systkinaafsláttur vegna annars barns og 100% systkinaafsláttur vegna þriðja og fjórða barns.
5 dagar í viku kr. 10.040 á mánuði 4 dagar í viku kr. 8.185 á mánuði 3 dagar í viku kr. 6.325 á mánuði 2 dagar í viku kr. 4.450 á mánuði 1 dagur í viku kr. 2.590 á mánuði
Gjaldskrá fyrir síðdegishressingu 5 dagar í viku kr. 2.900 á mánuði 4 dagar í viku kr. 2.320 á mánuði 3 dagar í viku kr. 1.740 á mánuði 2 dagar í viku kr. 1.160 á mánuði 1 dagur í viku kr. 580 á mánuði
Aukalega er innheimt fyrir vistun frá kl. 8:00 - 13:25 á starfs- og foreldraviðtalsdögum sem og í jóla og páskafríum. Skrá þarf sérstaklega ef fólk nýtir sér þessa vistun. Gjaldið er 1500 kr. hver eining. Frá 1.febrúar 2011 verður veittur 75% systkinaafsláttur af frístundagjaldi vena annars barns og 100% systkinaafsláttur vegna þriðja og fjórða barns. Gíróseðill er sendur heim um mánaðarmót fyrir mánuðinn sem er liðinn. Eftirá greitt. Ef þjónustu er sagt upp skal það gert skriflega fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Frístundagjald er innheimt eftir á og er eindagi 15 dögum eftir gjalddaga. Skráning fyrir hádegi á heilum dögum er bindandi og er gjald fyrir slíka skráningu innheimt tvisvar yfir skólaárið. Börn sem hefja skólagöngu haustið 2011 hafa forgang um dvöl á frístundaheimilum ÍTR. Ennfremur njóta börn sem hafa sérstakar aðstæður forgangs, skv. vinnureglum sem ÍTR setur sér. |





















