Síðdegishressingin Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 17 febrúar 2011 10:22

Þegar börnin mæta í Kátakot um kl. 13:30 er þeim boðið uppá ávexti. Starfsfólk Kátakots sér síðan um síðdegishressinguna milli kl. 14.50 og 15.30. Gjaldið fyrir síðdegishressinguna er innheimt á sama gíróseðli og vistunin.

Í Kátakoti er boðið upp á brauð og yfirleitt nokkur álegg, súrmjólk, hrökkbrauð, grænmeti, flatkökur, rúgbrauð og fleira gott og spennandi. Við reynum að hafa síðdegishressinguna heimilislega með rólegu og þægilegu andrúmslofti. Einstaka sinnum er nýbakað bakkelsi.