| Skólareglur |
|
|
|
| sunnudagur, 21 ágúst 2011 22:52 |
|
Nú hafa skólareglurnar verið uppfærðar. Megin breytingin er á efsta stigi, 8.-10. bekk en þar munum við hætta að gera námssamninga við nemendur og foreldra heldur láta agakerfi skólans, 1., 2. og 3. stig, ná til allra nemenda skólans. Jafnframt hefur ástundun og mæting verið tengd við ástundunareinkunn í Mentor. sjá bls 10-12 í starfsáætlun Klébergsskóla Og hér er það sem tekur við þegar skólareglunum sleppir: Skólareglur Klébergsskóla Í Klébergsskóla er lögð áhersla á að framkoma nemenda, umgengni, ástundun og stundvísi sé góð. Reglur skólans taka mið af þessu. Nemendur og kennarar setja síðan frekari reglur um umgengni og almenn samskipti og semja bekkjarreglur. Komi upp vandamál vegna hegðunar og/eða ástundunar nemenda eru þau leyst í samvinnu við nemendur og foreldra. Framkoma Nemendum ber að koma fram við skólasystkini, starfsfólk skólans og gesti, af fyllstu kurteisi og tillitssemi, jafnt í orði sem í verki. Reglur Olweusar gegn einelti gilda í skólanum:
Nemandi á að: Hlýða fyrirmælum alls starfsfólks skólans. Sýna öllum kurteisi og tillitsemi. Valda ekki truflun í kennslustundum Hjálpa til við að útrýma stríðni og einelti í skólanum Ganga vel um skólalóð, húsnæði, húsgögn og verkfæri skólans Fara úr skóm, yfirhöfnum og höfuðfötum og ganga snyrtilega frá skónum í skóhillur og yfirhöfnum í fatahengi. Vera ekki með tyggjó í skólanum og hafa slökkt á tónhlöðum nema með leyfi kennara. Notkun farsíma eru bönnuð. Vera á skólalóðinni á skólatíma og yfirgefa ekki svæðið nema með leyfi umsjónarkennara eða skólastjórnenda. Umgengni Öllum er ætlað að ganga kurteislega og þrifalega um skólann og muni hans. Vísvitandi skemmdir skulu bættar af viðkomandi nemanda og forráðamönnum hans. Háreysti og hlaup á göngum eru bönnuð, einnig er notkun tyggjós og farsíma bönnuð í skóla og á skólalóð. Snjókast er bannað á skólalóð í frímínútum nema á fyrirfram ákveðnum svæðum. Hjólatæki eru ekki leyfð á skólalóð á skólatíma nema á sérstökum hjólatækjadögum. Ekki skal fara af skólalóð á skólatíma nema með leyfi umsjónarkennara eða skólastjórnanda. Ástundun og stundvísi Öllum ber að stunda nám og starf af kostgæfni. Mæta skal stundvíslega í allar kennslustundir með þau gögn sem nota á hverju sinni. Hægt er að fylgjast með skráningu á Mentor.is. Neysla ávana- og fíkniefna Skólinn og skólalóðin er reyklaus vinnustaður og öll meðferð tóbaks og annarra vímuefna er bönnuð. Það sama á við hvar sem nemendur eru á vegum skólans. Alvarleg og ítrekuð brot eru skráð í ferilskrá og unnin samkvæmt agaferli skólans. Agaferill skólans Forstig. Ef nemandi fer ekki eftir skólareglum skólans, stundar ekki námið í skóla eða heima eða veldur beinni eða óbeinni truflun eða töfum á skólastarfinu þrátt fyrir umvandanir kennara hefst agaferli innan skólans í samvinnu við forráðamenn. Aðgerð skólans – umsjónarkennari hefur samband við forráðamenn, útskýrir málsatvik og leitast við að leysa málið í samstarfi við heimilið. Ef nemandinn heldur uppteknum hætti eða brýtur ítrekað skólareglur fer hann á: 1. stig - Skrifleg tilkynning – Umsjónarkennari ræðir við nemandann og sendir í samráði við stjórnendur, forráðamönnum skriflega tilkynningu þar sem fram kemur hvaða þáttum er ábótavant í starfi nemandans og til hvaða ráða skólinn tekur verði ekki gerð bragarbót þar á. Umsjónarkennari hefur símasamband heim og lætur forráðamenn vita að tilkynningin berist heim í tösku nemandans. Nemandinn kemur með staðfestingu forráðamanns fyrir móttöku tilkynningarinnar daginn eftir. Frumkvæði að lausn vandans er nú í höndum nemanda og forráðamanna. Skólinn er til þjónustu reiðubúinn. Ef nemandinn heldur uppteknum hætti fer hann á: 2. stig - Skrifleg viðvörun - Umsjónarkennari vísar nemanda til stjórnanda. Hann ræðir við nemandann og sendir forráðamönnum skriflega tilkynningu þar sem fram kemur í hvaða þáttum nemandinn hefur ekki bætt sig. Stjórnandi hefur símasamband heim til nemandans og lætur forráðamenn vita að tilkynningin berist heim með nemandanum. Nemandinn kemur með staðfestingu forráðamanns fyrir móttöku tilkynningarinnar í skólann daginn eftir. Frumkvæði að lausn vandans er nú ítrekað í höndum nemanda og foreldra. Skólinn er til þjónustu reiðubúinn. Nemandi heldur uppteknum hætti og aðgerðir foreldra og skóla hafa engan árangur borið fer nemandi á: 3. stig - Brottvísun innan skóla - Umsjónarkennari vísar málinu til stjórnanda sem ræðir við nemandann og hefur samband við forráðamenn þar sem þeir eru boðaðir til fundar um málið. Frumkvæði tekur skólinn. Til framkvæmda kemur “brottvísun innan skóla” (2 – 5 daga) en meðan málið er í vinnslu á þessu stigi verður nemandinn að stunda nám sitt í umsjón stjórnenda svo námsfúsir nemendur geti óáreittir stundað nám sitt. Nemandi vinnur samkvæmt skipulagi umsjónarkennara en nýtur takmarkaðrar leiðsagnar. Finnist lausn á vandanum kemur nemandi aftur til starfa í bekknum sínum en fer jafnframt í viðtal til námsráðgjafa. Alvarleg brot geta leitt til þess að nemandi fer beint á 3. þrep. Nemandi heldur uppteknum hætti eða forráðamenn eru ekki tilbúnir til samstarfs fer nemandi á: 4. stig - Brottvísun – Ef ekki finnst leið út úr ógöngunum verður nemanda vísað úr skóla ótímabundið samkvæmt grunnskólalögum og málið tilkynnt fræðsluyfirvöldum.
|





















