| Hreinsunarátak |
|
|
|
| laugardagur, 12 maí 2012 16:51 |
|
Umhverfisdagur Reykjavíkur var mánudaginn 23. apríl s.l. og þann dag og næstu daga á eftir fóru nemendur í 1. – 7. bekk og út og tíndu rusl af skólalóð, úr fjörunni og víðsvegar í umhverfi skólans og hverfisins. Ruslið var skoðað og metið og gerð skýrsla þar sem m.a. kom fram hverskonar rusl var mest áberandi og hvað er helst til ráða til að draga úr rusli úr umhverfinu. Nemendur bjuggu síðan til glæsileg listaverk úr ruslinu. Þess má geta til umhugsunar að svo mikið fannst af rusli að ruslageymsla skólans yfirfylltist þessa viku. Þetta heppnaðist alveg ljómandi vel og má líta afraksturinn í máli og myndum á Grænfánavegg skólans.
|





























