|
|
|
fimmtudagur, 16 maí 2013 15:08 |
|

Nemendur úr 4. bekk sýndu dansatriði á samverunni í morgun. Þeim leiddist það ekki enda lagið skemmtilegt. Við tók svo kynning á Grænfánaverkefni frá yngsta stiginu. sjá myndasafn |
|
miðvikudagur, 15 maí 2013 14:56 |
|

Nemendur í hemilisfræðivali nýttu sér góðviðrið í síðustu viku og elduðu sér ungverska gúllassúpu yfir eldi í útistofu og eftirrétturinn, grilluðu sykurúðarinir urðu óvart forréttur einhverra hluta vegna. sjá myndasafn |
|
miðvikudagur, 15 maí 2013 14:03 |
Fjaran okkar er algjör gullnáma og 4. bekkur sem hefur verið í blandaðri smiðju frá áramótum fór þangað í rannsóknarleiðangur í síðustu viku. Hamrar voru með í farangrinum og voru þeir nýttir til að brjóta steina og var mikill ákafi og spenna að berja á steinunum. Þegar steinarnir svo hrukku loks í sundur heyrðust mikil gleði- og undrunarhróp yfir því sem þá kom í ljós. Einn nemandi hafði þó meiri áhuga á að halda áfram með verkefni frá síðasta tíma og hlóð myndarlega vörðu úr steinunum meðan aðrir voru að rannsaka innihaldið :)

Fjaran okkar er algjör gullnáma og 4. bekkur sem hefur verið í blandaðri smiðju frá áramótum fór þangað í rannsóknarleiðangur í síðustu viku. Hamrar voru með í farangrinum og voru þeir nýttir til að brjóta steina og var mikill ákafi og spenna að berja á steinunum. Þegar steinarnir svo hrukku loks í sundur heyrðust mikil gleði- og undrunarhróp yfir því sem þá kom í ljós. Einn nemandi hafði þó meiri áhuga á að halda áfram með verkefni frá síðasta tíma og hlóð myndarlega vörðu úr steinunum meðan aðrir voru að rannsaka innihaldið :) sjá myndasafn |
|
Vortónleikarnir vel heppnaðir |
|
|
|
|
mánudagur, 13 maí 2013 08:37 |
|

Vortónleikar Tónlistarskólans á Klébergi fóru vel fram. Einhver forföll voru hjá nokkrum nemendum vegna veikinda og voru því svolítið færi sem komu fram. Við vonum að þau séu nú öll farin að braggast. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 104 |