|
miðvikudagur, 15 maí 2013 14:56 |
|

Nemendur í hemilisfræðivali nýttu sér góðviðrið í síðustu viku og elduðu sér ungverska gúllassúpu yfir eldi í útistofu og eftirrétturinn, grilluðu sykurúðarinir urðu óvart forréttur einhverra hluta vegna. sjá myndasafn |
|
|
miðvikudagur, 15 maí 2013 14:03 |
Fjaran okkar er algjör gullnáma og 4. bekkur sem hefur verið í blandaðri smiðju frá áramótum fór þangað í rannsóknarleiðangur í síðustu viku. Hamrar voru með í farangrinum og voru þeir nýttir til að brjóta steina og var mikill ákafi og spenna að berja á steinunum. Þegar steinarnir svo hrukku loks í sundur heyrðust mikil gleði- og undrunarhróp yfir því sem þá kom í ljós. Einn nemandi hafði þó meiri áhuga á að halda áfram með verkefni frá síðasta tíma og hlóð myndarlega vörðu úr steinunum meðan aðrir voru að rannsaka innihaldið :)

Fjaran okkar er algjör gullnáma og 4. bekkur sem hefur verið í blandaðri smiðju frá áramótum fór þangað í rannsóknarleiðangur í síðustu viku. Hamrar voru með í farangrinum og voru þeir nýttir til að brjóta steina og var mikill ákafi og spenna að berja á steinunum. Þegar steinarnir svo hrukku loks í sundur heyrðust mikil gleði- og undrunarhróp yfir því sem þá kom í ljós. Einn nemandi hafði þó meiri áhuga á að halda áfram með verkefni frá síðasta tíma og hlóð myndarlega vörðu úr steinunum meðan aðrir voru að rannsaka innihaldið :) sjá myndasafn |
|
Vortónleikarnir vel heppnaðir |
|
|
|
|
mánudagur, 13 maí 2013 08:37 |
|

Vortónleikar Tónlistarskólans á Klébergi fóru vel fram. Einhver forföll voru hjá nokkrum nemendum vegna veikinda og voru því svolítið færi sem komu fram. Við vonum að þau séu nú öll farin að braggast. |
|
Fulltrúi skólans á Skólaskákmóti Reykjavíkur |
|
|
|
|
föstudagur, 10 maí 2013 07:42 |
|
Ragnar í 7. bekk tefldi fyrir hönd Klébergsskóla á Skólaskákmóti Reykjavíkur, nú í lok apríl. Hann stóð sig með prýði, eins og við var að búast og þrátt fyrir að vera bara einn frá skólanum í þessu erfiða móti. Björn Ívar skákkennari var með honum og á næsta ári sendum við vonandi fjölmennari sveit. Skákin blómstrar í Klébergsskóla um þessar mundir, allir bekkir í 1.-7. bekk hafa fengið kennslu hjá Birni Ívari í þessari íþrótt andans og hefur hún mælst mjög vel fyrir. En Ragnar fær hrós fyrir að halda uppi merki skólans og standa sig svona vel á mótinu. Þess má geta að þó að hann hafi ekki lent í einu af efstu sætunum, enda kannski ekki hægt að ætlast til þess á hans fyrsta stórmóti, þá vann hann skákina gegn þeim dreng sem svo sigraði í mótinu!

Ragnar Líndal, 7. bekk. |
|
Fjörumyndir eftir 5. bekkinn |
|
|
|
|
miðvikudagur, 08 maí 2013 14:20 |
|

Sólin skein svo glatt á mánudaginn að 5. bekkur ákvað að drífa sig út í fjöru í myndmenntatímanum með pappír og blýanta og freista þess að fanga eitthvað af því sem fyrir augu bar á pappírinn. Lífríkið í fjörunni dregur alltaf að sér athygli nemenda og voru hin ýmsu kvikindi rannskökuð þó svo þau yrðu nú ekki fyrir valinu sem fyrirmynd þegar að teikningu kom. sjá myndasafn |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 2 af 104 |