|
miðvikudagur, 08 október 2008 22:38 |
|
Tónlistarkennsla Tónlistarskólans á Klébergi fer fram í Klébergsskóla á skólatíma og eftir skóla ef þess er óskað og viðkomandi kennari getur orðið við þeirri bón.
Kennt er m.a. á blásturshljóðfæri, orgel, gítar, harmonikku og píanó. Stefnt er að því að skólahljómsveit starfi í skólanum en nemendur eiga jafnframt kost á að æfa með Skólahljómsveit Mosfellsbæjar. Skólinn hefur útvegað nemendum blásturshljóðfæri og takmarkar fjöldi þeirra nokkuð nemendafjölda. Aðrir nemendur skólans nýta eigin hljóðfæri. Skólagjöld eru greidd tvisvar á ári fyrir haust- og. vorönn.
Kennarar tónlistarskólans sjá um tónlistarkennslu (blokkflauta) í 1. 2. og 3. bekk og barnakórinn á Klébergi. Kennarar við skólann eru Sveinn Þ. Birgisson, Páll Helgason og Ásrún Inga Kondrup. Björgvin Þór Þórhallsson skólastjóri Tónlistarskólans á Klébergi er jafnframt skólastjóri Klébergsskóla.
Tónlistarskólinn á Klébergi heldur að jafnaði tvo tónfundi á ári. Þann fyrri í desember eða janúar en þann síðari í maí. Auk þess koma nemendur fram á uppákomum á vegum Klébergsskóla og við ýmis önnur tækifæri sem gefast. |