Komandi viðburðir


Skólafærninámskeið fyrir foreldra í 1. bekk
september 08, 2010 (18:00 - 19:00)
Skoða dagatalið
Júlí 2010 ágúst 2010 September 2010
Su Þr Mi Fi La
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31
Tónlistarskólinn
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 08 október 2008 22:38

Tónlistarkennsla Tónlistarskólans á Klébergi fer fram í Klébergsskóla á skólatíma og eftir skóla ef þess er óskað og viðkomandi kennari getur orðið við þeirri bón. 

Kennt er m.a. á blásturshljóðfæri, orgel, gítar, harmonikku og píanó. Stefnt er að því að skólahljómsveit starfi í skólanum en nemendur eiga jafnframt kost á að æfa með Skólahljómsveit Mosfellsbæjar. Skólinn hefur útvegað nemendum blásturshljóðfæri og takmarkar fjöldi þeirra nokkuð nemendafjölda.  Aðrir nemendur skólans nýta eigin hljóðfæri.  Skólagjöld eru greidd tvisvar á ári fyrir haust- og. vorönn.

Kennarar tónlistarskólans sjá um tónlistarkennslu (blokkflauta) í 1. 2. og 3. bekk og barnakórinn á Klébergi. Kennarar við skólann eru Sveinn Þ. Birgisson,  Páll Helgason og Ásrún Inga Kondrup. Björgvin Þór Þórhallsson skólastjóri Tónlistarskólans á Klébergi er jafnframt skólastjóri Klébergsskóla.

 

Tónlistarskólakennarar:

Viðtalstími
í síma 566-6083

Netfang

Páll Helgason

Eftir samkomulagi

Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.

Ásrún Inga Kondrup

Eftir samkomulagi

Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.

Sveinn Birgisson

Eftir samkomulagi

Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist.

 

Tónlistarskólinn á Klébergi heldur að jafnaði tvo tónfundi á ári.  Þann fyrri í desember eða janúar en þann síðari í maí.  Auk þess koma nemendur fram á uppákomum á vegum Klébergsskóla og við ýmis önnur tækifæri sem gefast.